Bryndis
Ísland !!!
      <description>Komin heim til yndislega Íslands og það er frábært. Eftir tveggja tíma seinkun á fluginu komumst við loksins heim og þar sem að við vorum næstum því hungurmorða ákváðum við að skella okkur á Kentucky ummmm....
Mínar elskulegu vinkonur voru svo æðislega að skipuleggja smá hitting strax í gærkvöldi og þegar ég kom inn með Tinnu og knúsaði Röggu, Höllu,Rögnu, Krissu og Guðrúni lá við að ég fengi bara tár í augun. Anton sæti kom með kærustuna og smellti á mig einum og svo fyrir tilviljun hitti ég elskuna hann Jónas og hann var auðvitað hress eins og alltaf. Eftir heimsmet í spjalli miðað við... (more)</description>
Danmörk
      <description>Þá erum við komin til Danmörku, réttast sagt Roskilde og höfum það agalega gott hérna hjá vinafólki hans Inga. Það var rosalega skrýtið að kveðja Barcelona og þar sem að tíminn er búinn að líða svo ofsalega hratt þá hefði hluti af mér alveg verið til í að vera lengur en svo er líka stór hluti af mér sem er orðinn svo spenntur að koma heim til yndislega Íslands, tíminn eftir að Ingi kom leið bara hreinlega alltof hratt en til Barcelona fer ég alveg pottþétt aftur, helst innan tveggja ára, ég gjörsamlega dýrka þessa borg. Ferðalagið hingað gekk lygilega vel þrátt fyrir að við værum með... (more)</description>
Síðasta helgin í Barcelona
      <description>Þá er síðasta helgin mín hér í Barcelona liðin og  hún leið náttúrulega alltof hratt eins og síðustu vikurnar hafa gert. Náðum nú samt að afreka nokkuð mikið og okkur gengur vel að tæma things do to before Iceland listann. 
Á fimmtudaginn fórum við að sjá Sagrada Familía og ég tók fullt fullt af myndum. Fengum frábært veður og vorum á góðum tíma efst í turnunum þegar sólin var í þann veginn að setjast. 
Laugardagurinn fór aðallega í verslunarleiðangur, klára jólagjafalistann enda er hann líka nokkuð langur þegar við eigum bæði svona stórar fjölskyldur. Á bara eftir að kaupa jólagjafir handa... (more)</description>
Sæl nú !!
Fótboltaleikurinn var algjör snilld og við vorum rosalega heppin með leik og úr var algjör markaveisla. Ronaldinho fór algjörlega á kostum og það er alveg ótrúlegt að sjá hann dansa með boltann, algjör snillingur. Stemmingin var rosalega og byrjaði strax í lestinni þar sem var fullt af þýskurum, sumir drukknari en aðrir og í miklu stuði. Þar sem að við vorum nú ekki alveg viss um hvar leikvangurinn var, þótt risa risa stór sé, þá ákváðum við að fylgja þýskurunum að vellinum og okkur var hreinlega fylgt í stórum hóp og með öryggisvörðum allt í kring til að tryggja að enginn skyldi nú gera... (more)</description>
Coldplay....
      <description>voru frábærir og ég er enn í skýjunum. Fórum af stað og ég orðin frekar súr vegna þess að klukkan var orðin svo margt og við vorum svo lengi að finna leigubíl. Þetta er stórmerkilegt hérna, alltaf þegar mig vantar leigubíl þá er náttúrulega enginn til í allri Barcelona borg og svo þegar mig vantar ekki neinn helv.. bíl þá eru þeir út um allt en eftir mikla leit, nokkur andvörp og heilmörg blótsyrði birtist einn gulur á kantinum og við höppuðum upp í hann og hentumst í Palau Saint Jordi þar sem tónleikarnir voru haldnir. Fyrir utan var fullt af fólki að selja miða en þeir voru frekar dýrir,... (more)</description>
Ekki týnd !!
      <description>Komin vika sídan ad Ingi kom og tíminn gjorsamlega flýgur áfram. Tad var agalega gott ad knúsa og kyssa kallinn eftir svona langann tíma og gott ad vera búin ad fá hann hingad í tessa yndislegu borg.
Er ekki jafn heppinn í nýju íbúdinni eins og hinni ad geta tengst netinu og tess vegna hefur verid eitthvad lítid um samskipti vid netheiminn sídustu daga. En hédan er sko allt gott ad frétta, nýja íbúdin  er alveg frábaert og tad besta er náttúrulega ad tar er endalaust heitt vatn og almennilegur kraftur. Hún er líka á fínum stad en ekki alveg jafn skemmtilegum og hin enda var hún á... (more)</description>
Þú skalt syngja lítið lag um lífsgleðina sjálfa í brjósti þér...
      <description>Mp3 spilarinn minn er eitt það sem ég elska mest í heiminum og ég er viss um að ég hefði aldrei lifað af hérna í Barcelona án þess að hafa þetta litla tæki. Ég get gjörsamlega gleymt mér í lestinni með einhverja tónlist í eyrunum, fæ stundum á tilfinninguna að ég sé í myndbandi og allt fólkið í kringum mig sé líka að leika í þessu myndbandi, alveg hreint ótrúlegt hvað tónlist getur gert mikið fyrir mann. Sænsku stelpurnar voru að reyna að kynna mig fyrir sænskri tónlist í gær og það var nú margt bara nokkuð skemmtilegt þarna, var minnst að fíla þær hljómsveitir sem spiluðu á sænsku en fyndið... (more)</description>
Kuldaboli....
      <description>...er farin að bíta í rassinn á mér á nóttunni hér í Barcelona, agalega gaman að hafa engann ofn í herberginu og þess vegna þarf ég bókstaflega að henda mér fram úr rúminu á morgnann en það er nú svo sem ekkert nýtt fyrir mér, hef aldrei verið neitt mikið fyrir að vakna snemma á morgnanna, miklu meira fyrir það að fara seint að sofa enda hálfgert leðurblökueðli í mér eins og pabbi segir. 
Þegar við komum heim úr skólanum í dag biðu okkar 3 rafmagnsofnar sem vakti mikla kátínu hjá okkur, ég ætlaði bara að vera róleg og bíða eftir Inga og láta hann hlýja mér enda ekki nema 2 dagar í kallinn... (more)</description>
Loksins blogg
      <description>Netið hér heima búið að vera í stríðnisleik undanfarna viku og ég dett alltaf út eftir svona 10 mín og það er ástæðan fyrir bloggleysi undanfarna viku. Er alveg viss um að fólk er búið að bíða í ofvæni eftir nýju bloggi eða hvað.... 
Hvernig væri nú aðeins að kommenta og láta smá heyra í sér, er að koma heim eftir rúman mánuð og ég heimta að allir kommenti hér og nú !!
Annars er vikan búin að vera frábært, endalaust af heimsóknum í íbúðina til okkar og það er nú alveg ótrúlegt hversu mikið af fólki getur safnast saman hérna. Kannski er þetta svííunum að þakka því þetta er nú... (more)</description>
Aftur í tímann
      <description>Í dag breyttist klukkan hérna þannig að núna munar bara einum tíma á Barcelona og Íslandi sem er aðeins betra fyrir mig þar sem ég tala svolítið mikið til Íslands ;) En Elin er búin að vera að tala um þetta alla helgina og ég hafði ekki heyrt minnst á þetta þannig að eins gott að hún sagði mér frá breytingunni því annars hefði ég mætt klukkutíma of seint í skólann í fyrramálið. Finnst mjög skrýtið að enginn af kennurunum mínum skyldi minnast á þetta við okkur og það verða eflaust margir sem að koma of seint á morgun hehe....
Annars var helgin hreint út sagt mögnuð. Gærkvöldi var mini... (more)</description>