|
Ingi var hins vegar ekki í svo miklu lummustuði fyrir tónleikana og var ekkert rosalega spenntur fyrir Coldplay en kom út af tónleikunum mjög sáttur og ánægður að ég skyldi ná að hafa það með frekjunni að draga hann á tónleika. Villtumst svo aðeins á leiðinni heim og vorum víst komin í eitthvað skuggahverfi þar sem menn eru aðallega í því að selja dóp og sjálfan sig en fundum sem betur fer leigubíl ótrúlega fljótt en hann tók okkur bara upp í af því að við litum ekki út fyrir að vera dópsalarar en vanalega tekur hann nefnilega ekki fólk upp í á þessum stað, ótrúlega miklir sauðir stundum. Í kvöld er svo stefnan sett á leik í meistardeildinni með Barcelona - Werder Bremen og það er mjög spennandi. Ingi spenntari en ég í þetta skiptið en þetta er auðvitað eitt sem maður verður að gera hér í Barcelona, skylda að fara á Neu Camp !! Svo er bara að krossleggja fingur og vona að ég hitti Ronaldinho og hann smelli á mig einum kossi (mjög líklegt)... |
| Bryndís November 30, 2005 12:44 PM PST Snjólfur jú hann mundi nú eftir þessi og minntist einmitt á það að þetta hefði verið hin besta skemmtun :) ég hefði bara aldrei trúað hvað þeir væru frábærir live þessar elskur !! Maggý, lending fös 16 des,ertu búin í prófum þá ?? | ||
| Bryndís November 30, 2005 12:44 PM PST Snjólfur jú hann mundi nú eftir þessi og minntist einmitt á það að þetta hefði verið hin besta skemmtun :) ég hefði bara aldrei trúað hvað þeir væru frábærir live þessar elskur !! Maggý, lending fös 16 des,ertu búin í prófum þá ?? | ||
| Maggý November 29, 2005 08:12 PM PST vá ég er einum of öfundsjúk núna-Coldplay og stórleikur, ég lofaði víst að halda alltaf með Werden Bremen út í Indlandinu svo þarna hefði bara verið kjörið tækiflæri fyrir mig að kynnast team-inu. Meeeen! En að öðrum mun mikilvægari málum-hvenær kemuru heeeeeeeeeim!!! | ||
| Snjólfur Magnússon November 23, 2005 05:12 PM PST Einhverntíman hringdi Ásgrímur Ingi föðurbróðir minn í mig og vildi ólmur fá mig á tónleika, tveir fyrir einn á Coldplay í höllinni 2002. Þegar við komum á tónleikastað uppgötvaði Ingi að hann þekkti ekkert lag með hljómsveitinni. Samt skemmtum við okkur konuglega. Ég efast um að hann hafi munað að hann væri búinn að sjá þá:) Kv. snjólfur | ||
| Leave a Comment: |