|
Ég og Elin tókum verslunarleiðangursmaraþon í gær, var á tímabili farin að halda það að við hefðum þrætt hverja einustu búð á Römblunni, að minnsta kosti hverja einustu Mango búð í Barcelona. Langar svo að sleppa mér algjörlega með visa kortið í þessum búðum en er að reyna að halda aðeins fastar um óheillagripinn svo að ég þurfi nú ekki að selja mig þegar ég komin heim ;) Best að hætta þessu rugli og fara að pússa mig aðeins til, aðeins nokkrir klukkutímar í að Ingi komi og ég get nú ekki neitað því að spennan er algjörlega í hámarki. Eins gott að maður líti nú almennilega út svo kallinn snúi ekki við á flugvellinum og taki næsta flug heim. Mæli sko alls ekki með því að fara til útlanda og skilja kærastann eftir heima og Brandurinn fékk svo sannarlega að kenna á því eftir að hafa sagt milljón sinnum við sjálfa mig, Inga og fullt af öðru fólki " isss þettta verður sko ekkert mál !!!!" Vodafone og Síminn standa örugglega í eilífri þakkarskuld við okkur fyrir að hafa bætt nokkuð mörgum þúsundkollum inn í gleðibankann þeirra og ég vænti þess að í staðinn geri þeir okkur að heiðursviðskiptavinum. Brandurinn þotinn með Gleðibankalagið á heilanum þessa stundina..... |
| Leave a Comment: |