Entry: Síðasta helgin í Barcelona Monday, December 05, 2005



Þá er síðasta helgin mín hér í Barcelona liðin og  hún leið náttúrulega alltof hratt eins og síðustu vikurnar hafa gert. Náðum nú samt að afreka nokkuð mikið og okkur gengur vel að tæma things do to before Iceland listann.

Á fimmtudaginn fórum við að sjá Sagrada Familía og ég tók fullt fullt af myndum. Fengum frábært veður og vorum á góðum tíma efst í turnunum þegar sólin var í þann veginn að setjast.

Laugardagurinn fór aðallega í verslunarleiðangur, klára jólagjafalistann enda er hann líka nokkuð langur þegar við eigum bæði svona stórar fjölskyldur. Á bara eftir að kaupa jólagjafir handa litlu strákormunum mínum þeim Kristófer og Davíð og þá er það nokkurn veginn búið, ótrúlegt hvað Brandurinn er snemma í þessu í ár. Röltum heillengi og skoðuðum í allar litlu skemmtilegu búðirnar í Barrio Gotíc, ég fæ einfaldlega aldrei nóg af þessu frábæra hverfi hér í Barcelona með öllum litlu búðunum og litlu götunum hver með sinn persónleika. Hittum svo Elinu og fengum okkur að borða á veitingastað sem heitir La Fonda sem ég mæli pottþétt með, vorum líka svo ótrúlega heppin að þurfa ekki að bíða í röð en vanalega er röð langt langt eftir götunni. Maturinn var mjög góður en samt var sjávarréttarsúpan sem ég fékk ekki nærri því eins góð eins og sjávarréttarsúpan á Hótel Framtíð, enda sú súpa best í heimi.

Í dag fórum við í safnaleiðangur og fórum á súkkulaðisafnið og Picassosafnið og í Poble Espanyol sem er æðislegt. Mér fannst þessi söfn vera nokkuð áhugaverð og það voru t.d. tvö önnur sem ég hefði alveg viljað fara á en dagurinn var bara svo fljótur að líða, jafnvel þótt að við hefðum verið komin út fyrir hádegi, ótrúlegt en satt á laugardegi J Ætluðum svo að klára daginn á því að fara á Erótískt safn hér í Barcelona, smá sárabót fyrir Inga sem var ekki alveg jafn spenntur fyrir þessum safnaleiðangri og ég, en eftir Poble Espanyol vorum við gjörsamlega búin á því og ákváðum að fresta því þangað til á mánudaginn, má ekki svíkja hann með það þessa elsku.

 Í dag er svo síðasti skóladagurinn minn og próf. Fæ að taka prófið tveimur dögum á undan því á morgun er frí og þá þarf ég ekki að mæta á miðvikudaginn og get eytt síðasta deginum hér í eitthvað skemmtilegra heldur en að vera í skólanum, er líka búin að vera svo agalega dugleg að mæta í skólann þannig að kennaranum mínum fannst ég alveg eiga þetta skilið, bara vona að þetta hel.. próf gangi vel, er algjör snillingur að klúðra prófum.

Á fimmtudaginn er það svo Köben og svo koma mínir elskulegir foreldrar á sunnudaginn. Er orðin svo spennt að koma heim en samt langar mig ekki alveg til þess að fara frá Barcelona, borgin er svo endalaust heillandi og ég stefni pottþétt á að koma hingað aftur, kannski ég geri það bara eftir áramót hehe

 

 

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments