|
|
 |
| |
Thursday, October 27, 2005 |
Til hamingju með daginn elskan mín
Í dag á hann elsku Ingi minn afmæli og ég get nú ekki sagt með góðri samvisku að ég sé að standa mig vel í kærustuhlutverkinu svona langt í burtu, hann má hins vegar eiga það að hann er sko að standa sig gífurlega vel með því að elta mig hingað. En ég reyni mitt besta og hringdi í hann eftir miðnætti að spænskum tíma og óskaði honum til hamingju með daginn en þá var klukkan reyndar bara 22 á klakanum. En þar sem að hann er nú stærri og eldri en ég og alls ekki mikið fyrir það að fólk sé að skrifa ástarjátningar á bloggsíðum sínum þá ætla ég að virða það og hafa mig hæga en það vita nú allir sem þekkja hann að þessi drengur er algjört gull af manni og ég er ótrúlega heppin að hafa kynnst honum, en nú er sko orðið stutt í að hann komi hingað og allar ástarjátningar og kossar verða sparaðir þangað til.
Þessir umræðutímar í skólanum eru algjör snilld og mér finnst þetta svo skemmtilegt. Þar sem allir eru á sama leveli í spænskunni náum við að skapa heilmiklar umræður og finna lausnir á vandamálum heimsins og svo fer líka rosa mikill tími í að bera saman heimalöndin okkar. Í mínum bekk er einn Frakki, einn Svisslendingur, tveir frá Þýskalandi, Hollendingur og strákur frá Boston sem átti einu sinni íslenska kærustu. Auðvitað eru við alltaf best í öllum heima á Íslandi og komum vel út í öllum samanburði hehe.
Svo eru alltaf að bætast við fleiri Svíar í skólann, þetta er orðið bara eins og lítið sænskt samfélag þessi skóli og alveg hreint ótrúlegt hversu mikið af Svíum er hérna. Í þessarri viku komu tveir strákar í minn bekk og ég er að hugsa um að hætta þessu spænskunámi og fara yfir í sænskuna !!!
Svo grunar mig að Spánverjarnir séu að setja upp jólaljós, allavega eru þeir alltaf að hengja eitthvað upp í tréin og það getur nú ekki verið mikið annað en jólaljós og fyrir minn smekk er þetta heldur snemmt. Vona bara að þeir kveiki ekki strax annars neyðist ég til að fara og klippa á snúrurnar :)
Og á meðan ég man þá dreymdi mig að Guðrún Anna hefði eignast litla stelpu í nótt, krílið kom mánuði fyrr en það átti að gera og hún var pínkulítil. Ég ælta að ráða þennan draum þannig að hún komi með litlu prinsessuna 27 nóvember !!
Man ekkert meira í bili til að segja frá, eiginlega alveg óþolandi hvernig hugurinn gjörsamlega tæmist þegar ég sest fyrir framan tölvuna en þess á milli er ég að semja fullt af skemmtilegum sögum til að segja....
adios
Posted at Thursday, October 27, 2005 by Bryndís
Permalink
Á laugardaginn fór ég til Andorra og menn vilja nú víst halda því fram að það sé annað land og mér finnst þetta land vera alveg hreint magnað. Þar sem að það er í Pýreneafjöllunum þá er aðeins kaldara þarna og loftið svo ferskt og mér fannst ég eiginlega bara vera á Íslandi í maímánuði. Þetta er taxfree staður og allt þess vegna frekar ódýrt þarna og sennilega ekki minna en svona 70 ilmvatnsbúðir, rafmangstæki og áfengis og sígarettubúðir þannig að auðvitað fékk kortið aðeins að kenna á því. Er strax búin að ákveða að fara þangað aftur þegar Ingi er kominn og taka jólagjafainnkaupin með stæl og vonandi fá aðeins meiri tíma til að skoða mig um þarna. Mestur tíminn fór nefnilega í búðirnar þar sem að við vorum svo stressaðar að við myndum ekki ná að skoða í allar verslanirnar, merkilegt hvað stelpur geta verið uppteknar af búðum ;) Komum svo heim á mátulegum tíma til að pússa okkur upp og kíkja út á lífið.
Sunnudagurinn fór svo í að skoða sig aðeins meira um hérna í Barcelona, skoðuðum Plaza Espanya og Montjuic og þar getur maður vel eytt nokkrum dögum bara í að labba um og skoða allar sögufrægu byggingarnar og svo náttúrulega geggjaða útsýnið yfir borgina. Eftir nokkurra klukkutíma túristaleik og milljón myndir vildi Elin endilega taka strætó heim, vanalega notum við nefnilega alltaf neðanjarðarlestina og þar af leiðandi útsýnið svo sem ekkert sérstakt og þar sem að ég var í rólegheitastuði og til í hvað sem er samþykkti ég þetta. Þegar við vorum búnar að biða eftir strætó í svona 15 mín sagðist ég ekki nenna þessu lengur, við kynnum hvort sem er ekkert á strætókerfið og ég ætlaði bara að taka lestina heim þá skundaði einn vagninn upp að okkur og Elin var alveg handviss um að þetta væri sá sem færi að Sagdrada Familia. Ég lét plata mig upp í vagninn sem endaði með 45 mín strætóferð. Eftir 25 mín í strætó þurfti pirraði strætóbílstjórinn að stoppa til að taka einhverja hvíldarpásu og spurði okkur hvert við værum eiginlega að fara, ég sagði honum það náttúrulega og hann fór bara að skellihlægja og sagði að við værum vitleysingar því þetta hefði verið vitlaus átt og núna væri hann að fara í áttina að Sagrada Famila OG að við þyrftum að borga aftur !!! En ég drap tímann með rannsóknum á spænsku mannlífi sem er svo sannarlega fjölbreytt og eiginlega bara ágætis skemmtun að fylgjast með fólkinu sem notar strætó. Tærnar á mér voru hinsvegar ekki sáttar við alla þessu göngu á sunnudeginum og bandaskór voru svo sannarlegu ekki réttu skórnir, svolítið sárt þar sem bandið liggur :)
Og þar sem mér finnst svo gaman í skólanum þá skráði ég mig í samræðutíma sem eru tveir extra tímar á dag og byrjaði í fyrsta tímanum í dag og líst mjög vel á þessa tíma. Það eina sem truflaði mig í tímanum var það að ein stelpan var með svo mikinn skeggvöxt í andlitinu að ég gat ekki annað en horft, dökk hár á hökunni og efri vörinni og hún er rosa ung, af hverju vaxar hún þetta ekki af.....???
Gerði ekkert til að styðja málstað minn sem kona í dag en vona bara að þessar 40 þús konur sem söfnuðust saman í miðbænum hafi látið í sér heyra. Held að ég hreinlega nenni ekki að fara út í þá sálma að tala um misrétti kynjanna í launamálum en auðvitað er það fáranlegt að árið 2005 eigi sér enn stað launamisrétti í landi eins og Íslandi. Einhverra hluta vegna verður mér hugsað til Jónasar þö cook í þessum skrifuðum orðum og efast ekki um að við gætum átt "líflegar" samræður um þessi mál í eldhúsinu á hótel Framtíð.
Síðast en alls ekki síst á hún Maggý sykurpúðinn minn afmæli. Til hamingju með daginn elskan !!! Missti víst af dúndurpartý í Grafarholtinu um helgina en efast ekki um að það verða haldin fleiri partý þar á næstu mánuðum :)
Posted at Monday, October 24, 2005 by Bryndís
Permalink
| |
Thursday, October 20, 2005 |
Allir þurfa góða granna.....
Það eru sko ekki greinilega allir jafn góðir grannar eins og nágrannarnir í Ástralíu. Verð bara aðeins að segja ykkur frá nágrönnunum mínum. Íbúðin sem við búum er á 6.hæð í 8 hæða blokk og hér allt um kring eru blokkir þannig að t.d. útsýnið frá gluggunum í íbúðinni eru bara gluggarnir á hinum blokkunum. Án gríns þá sjáum við enga náttúru, götur eða neitt, bara framhliðina á næstu blokkarbyggingu og úr herbergisglugganum mínum er bara þröngt húsasund og gluggar, gluggar, gluggar. Þetta hefur nú ekki angrað mig neitt enda fullt af öðrum hlutum að sjá hér í þessarri yndislegu borg en það sem hefur hins vegar angrað mig nokkuð eru lætin í þessum nágrönnum. Veggirnir hér eru miklu þynnri heldur en heima (enda hlýrra) og t.d. klósettglugginn okkar og eldhúsglugginn eru bara svona rimlar og ekkert gler þannig að við heyrum auðveldlega lætin sem fylgja daglegum athöfnum nágranna. Þetta er sérstaklega slæmt á kvöldin því t.d. einhver kall er alltaf að hlægja svo hátt yfir sjónvarpinu, og hann er með ömurlegan hlátur og á meðan heyri ég alltaf í konunni hans vera að vesenast í eldhúsinu og garga annað slagið á hann að koma og éta. Svo er alltaf eitthvað lítið kríli að gráta hérna, þetta barn er eitthvað ósátt við lífið og mér heyrist nú foreldrarnir ekkert vera að hugga það neitt mikið. Svo eru allskonar eldamennskuhljóð og tónlist og svo náttúrulega kúk og pisshljóðin(jább ég er ekki að grínast) sem er svo þægilegt að heyra á kvöldin þegar maður liggur í rúminu og er að reyna að sofna. Svo er ekkert meira hressandi á morgnanna heldur en að vakna við lætin í krakkaskítunum hér á efri hæðinni eða lætin í háhæluðum skóm.
Svona er þetta alls staðar hér í borginni held ég því alltaf annað slagið kemur einhver af samnemendum mínum með skemmtilega sögur af sínum nágrönnum. Ég er bara svo góðu vön heima á Ísland og hef ekki átt í neinum útistöðum við mína nágranna á minni stuttu ævi. Nema kannski þegar Nökkvi bjó við hliðina á okkur og ég var alltaf hálfhrædd við hann, hann var eitthvað svo stór og ógnvekjandi, sko annað heldur en amma hans sem er algjört yndi og var alltaf svo góð við litlu þríbbalingana frá Bár sem voru alltaf að stelast í fótbolta á lóðinni hennar.
Jæja ég er farin á internetkaffi og ætla að hringja í mömmu mína enda er mamma mín best í heimi.
Posted at Thursday, October 20, 2005 by Bryndís
Permalink
| |
Tuesday, October 18, 2005 |
El problema con el metro...
Lestarkerfið hérna er stundum bara algjör brandari. Í morgun vorum við allar tilbúnar nokkuð tímanlega, ótrúlegt en satt og röltum niður að lestarstöð og eftir svona 2 mín í lestinni stoppaði hún eins og venjulega á fyrsta stoppinu (við förum út á þriðja). En ekkert gerðist og engin hurð opnaðist og ég sá furðusvipinn á fólkinu sem stóð fyrir utan og ætlaði að komast inn, svona var þetta í 15 mín og það var orðið vel heitt og ekki laust við að mar væri bara aðeins farin að svitna. Mér finnst alveg merkilegt hvað fólkið hérna er samt svo rólegt, ég heyrði engann blóta eða vera með læti þótt að allir væru pottþétt orðnir of seinir í vinnuna eða skólann. Fólk bara horfð út í loftið, dæsti svona einstaka sinnum og bara beið rólegt. Er einhvern vegin viss um að þetta yrði ekki svona heima á Íslandi. Eftir þessar löngu 15 mín loksins opnaðist hurðin og þá þurftu allir að gjöra svo vel að fara út því vegna tæknilegra vandamál virkaði línan okkar ekki og þá var sko gjörsamlega troðið á lestarstöðinni og aðeins meiri hiti og sviti ummmm.... Við tókum þá snilldarákvörðun (héldum við allavega) að drífa okkur bara upp og taka leigubíl enda vorum við ekkert svo langt frá skólanum en auðvitað ætluðu allir að gera það saman þannig að strætó varð fyrir valinu og strætóbílstjórinn var einmitt að fara að stoppa á Passeig de Gracia (götunni sem skólinn er í). Yesss.... við vorum svo ótrúlega heppnar og vorum svo ánægðar með okkur en eftir nokkrar mínútur segir strætóbílstjórinn við okkur að hér eigum við að fara út, þetta sé stoppið hans á Passeig de Gracia, nema hvað að það er í svona 15 mín göngufæri frá skólanum. Hentumst út, ekki svo ánægðar með okkur þarna en þá tók við maraþon ganga, enn meiri sviti og ótrúlega óþolandi hiti. Mætti svo móð og másandi í skólann, hálftíma of seint og þá var orðinn klukkutími síðan ég lagði af stað að heiman og auðvitað þurti ég að segja alla söguna fyrir framan bekkinn. Ótrúlegt en satt þá er Bryndís að reyna að temja sér nýja siði og blótaði varla stakt orð á meðan á öllum þessum vandræðum stóð, tók pollýönnu á þetta og hugsaði með mér að þetta væri bara öðruvísi byrjun á deginum en svo verð ég náttúrulega brjáluð ef það sama gerist á morgun og fer beint inn á næstu bílasölu og kaupi mér bíl og hana nú.
Af veðurfréttum er það helst að enn rignir hér og ég hef nú eitthvað lítið séð af sól síðustu daga en það hlýtur nú að fara að hætta að rigna fljótlega.
Kriss missið mitt þúsund þakkir fyrir pakkann, stóðst þig alveg frábærlega í spænskunni ;)
Posted at Tuesday, October 18, 2005 by Bryndís
Permalink
Endalaus rigning og svíar !!
Hér á Spáni er búið að rigna alveg óhemju mikið síðustu daga, svo mikið að fólk er bara einfaldlega ekki að ráða við þetta. Það er nú reyndar ekki búið að vera jafnslæmt hér og í Madrid og aðeins lengra hér í Katalónya þar sem vatn flæðir yfir göturnar. Við erum alveg vissar að þetta er ástæðan fyrir því að það er alltaf eitthvað vesen með lestarkerfið hérna. Í gærmorgun þegar við vorum að fara í skólann var lestarstöðin okkar alveg troðfull af fólki og enginn komst neitt því löggan hafði lokað línunni okkar í smástund og svo var öllum hleypt inn á sama tíma og þess vegna varð þvílíkt öngþveiti, allir orðnir of seinir í vinnuna eða skólann og allir vildu ná lestinni. Mér finnst voða sætt að sjá alla labba með regnhlífar í öllum regnboganslitum en ég hef samt heyrt á fólkinu að það eru allir orðnir voða leiðir á þessu, enda mjög óvenjulegt hér í október. Það er samt enn hlýtt og við t.d. þurfum bara á peysunni í skólann en ég finn rosalegan mun á veðrinu þessa síðustu daga en auðvitað kvartar íslendingurinn ekkert yfir svona veðri en nóg af veðurfréttum.
Ætla að segja smá sögu af einni sænsku stelpunni sem ég bý með (Sanne). Þær eru nefnilega tvær saman hér í herbergi Sanne og Stina og gjörsamlega alltaf límdar saman. Við þekkjum þær nú ekkert rosalega mikið en þær virðast nú alveg ágætar, þær eru alltaf í tímum á daginn og byrja kl. 13 og eru þess vegna svolítið duglegar við að fara út á lífið á kvöldin. Í gærkvöldi kom svo vinkona þeirra í heimsókn (sem er líka sænsk en býr í Sviss) og það varð víst heldur mikið drukkið, var allavega nógu mikil læti í þeim áður en þær fóru út en svo kl 6 í morgun heyrði ég að það var verið að dingla dyrabjöllunni. Mér datt náttúrulega ekki til hugar að það væri einhver að koma í heimsókn til okkar, var svo viss um að þetta væri í einhverri annarri íbúð. Það var svoleiðis hamast á bjöllunni, ég lét koddan yfir hausinn mér og blótaði þessu fífli sem ekki fór til dyra og svo allt í einu heyri ég að Stine fer til dyra og þar er einhver dimmraddaður maður að tala hátt við hana og spyrja hvort að hún sé drukkin og eitthvað í sambandi við lykla. Ég varð nú smá smeyk, hvað í andskotanum væri að ske en svo var hurðinni bara skellt og þær fóru inn í herbergi. Í dag þegar við komum heim úr skólanum lágu þær skömmustulegar í sófanum og sögðu okkur að þetta hefði verið löggan sem var að skutla Sanne heim af því að hún var svo ölvuð. Hehheee þetta finnst mér mjög fyndið, held að þær verði allavega rólegar í kvöld.
Svo er ein dönsk stelpa líka í heimsókn hérna þannig að það vantar ekki fólkið.
Kominn föstudagur og helgarfrí framundan og eitthvað svona planað að gera. Ætlum allavega að kíkja út á lífið en veit nú ekki hvort að maður lætur lögguna skutla sér heim ?? Nei andskotinn hafi það....
Posted at Friday, October 14, 2005 by Bryndís
Permalink
Eftir að hafa loksins haft það af að klæða okkur seinnipartinn í gær ákváðum við sambýlingar (ég og Elín) að fara í smá göngutúr og gera eitthvað af okkur. Löbbuðum að La Sagrada Familía og ætluðum að skoða þessa sögufrægu byggingu en þar var gjörsamlega krökkt af túristum og ekki nema svona 8 rútur fyrir framan og fólk með myndavélar á lofti út um allt. Við sáum það að sennilega eru sunnudagar ekki bestu dagarnir til að vera túristi þannig að við fundum okkur kaffihús og keyptum okkur kaffi og súkkulaðiköku og settumst á bekk í garði sem er rétt hjá kirkjunn. Garðurinn virtist við fyrstu sýn vera agalega lítill og kósí en þegar við vorum búnar að sitja þar í smá stund og ræða muninn á sænska og íslenska skólakerfinu,leiguverði og ég veit ekki hvað og hvað segir Elín allt í einu:
Elín: "ææ sjáðu sætu rottuna sem er að hlaupa þarna"
Bryndís: "haaa hvað segirðu ojjj ég þoli ekki rottur"
E: "oo hún er svo sæt, hlaupandi um að leita að einhverjum mat"
B"ojjj sjáðu hvað hún er með langt og ógeðslegt skott "
E:" hei þetta minnir mig bara á það þegar hundurinn minn beit einu sinni hausinn af rottu og kom með hann inn"
B:"hhaa hvað ertu að segja, þess vegna þoli ég ekki hunda. Var löngu búin að missa alla matarlyst á kökunni"
E: "já enda snerti ég ekki munninn á honum í margar vikur á eftir"
Þetta sem sagt segir okkur það að bæði hundar og rottur eru ógeðis fyrirbæri og það er mér algjörlega óskiljanlegt af hverju fólk vill eiga svona dýr.
Lítið annað að frétta svo sem nema að vasaþjófarnir eru sko alveg að vinna vinnuna sína hér í Barcelona. Ein stelpan sem ég bý með fór á kaffihús í dag, sat þar inni og var að spjalla við vinkonu sína þegar eitthvað fólk kom inn og var að betla pening af þeim en þær vildu ekki gefa þeim neitt en þau náðu samt að fanga athygli þeirra það mikið að einhver af þeim gat laumast ofan í töskua og hirt peningaveskið hennar. Þetta er eiginlega alveg ótrúlegt því miðað við hvað hún segir þá var hún ekkert kærulaus með töskuna sína (eða hélt það allavega) en þeir eru víst alveg ótrúlega klókir. Þetta er eiginlega það eina sem ég þoli ekki við þessa borg. Kann alltaf betur og betur við mig hérna en það er svo óþolandi að þurfa alltaf að vera að hafa hugann við töskuna og veskið. Ekki gott að vera svona stressmanneskja eins og ég því ég tjékka svona 30 sinnum á veskinu mínu, bara þegar ég er að labba í skólann og ef að einhverjum (t.d. Guðrúnu hehe) finnst ég tjékka oft á því hvort að bílinn minn sé læstur heima á Íslandi þá er það sko bara smámál miðað við tjékkið hér í Barcelona. Skulum bara vona að það borgi sig.
Posted at Monday, October 10, 2005 by Bryndís
Permalink
Stundum er gott að eiga Polo...
Af óviðráðanlegum orsökum þurfti ég að leggja 10 mín of seint af stað í skólann í dag sem er eitthvað sem ég er að hugsa um að gera á hverjum morgni. Vanlega þá förum við frá íbúðinni svona 15-20 mín í 9 en í morgun var ég svo löt að fara fram úr að ég lagði ekki af stað fyrr en rétt að verða 5 í 9 og komst að því að það er sko miklu betra. Það var helmingi minna af fólki á götunum sem þýddi það að ég þurfti ekki að vera á harðahlaupum að lestarstöðinni og þegar ég kom þangað var stöðin næstum því tóm, mér til mikillar undrunar og ég þurfti ekki heldur að troða mér í lestina og vera alveg upp í andlitinu á næsta manni heldur beið bara sæti eftir mér og ég settist niður í rólegheitunum og slakaði á. Þegar ég var svo komin á mína stoppistöð var lítið af fólki þar líka og allir svona almennt bara nokkuð rólegir þannig að ég tölti sæl og brosandi í skólann. Kom 10 mín of seint sem að skipti nú ekki svo miklu máli, sá einmitt þegar ég var að koma inn um dyrnar á skólanum að skólameistarinn var að koma á sama tíma, greinilega sniðugur að sleppa við mestu trafíkina. Þetta er nefnilega alveg merkilegt hér á morgnanna, allir að fara á sömu mínútunni í lestina og hún er svo gjörsamlega troðin, óþolandi þegar fólk t.d. tannburstar sig ekki eða lyktar ekkert of vel þá langar mig bara til þess að fleygja viðkomandi út. Veit ekki hvað kennaranum finnst um það ef ég myndi mæta of seint á hverjum degi en ég varð rosalega hissa hve miklu þessar mínútur breyttu en morgunhlaupin hressa mann samt vel við líka.
Selma Björns er agalega vinsæl í ræktinni minni þessa dagana, þeir eru alltaf að spila einhver lög með henni þar og það minnir mig alltaf á helvítis eurovision þegar Svíarnir unnu okkur og ég neyðist í hvert einasta skipti til að segja Elinu (sænsku stelpunni) hversu litlu munaði. Charlotte Nilsen er víst glötuð gella í Svíþjóð núna....
Erum að fara að elda saman hér heima hjá okkur í kvöld, ein íslensk, tvær danskar og tvær sænskar, finnst eins og það vanti einn íslending í hópinn, allir velkomnir í heimsókn ;) Veit nú ekki hversu mikil eldamennska þetta verður, erum starx farnar að ræða þann möguleika að kaupa take away mat en við sjáum til, aldrei að vita nema Brandurinn galdri eitthvað fram úr erminni, tjaaa...eða svona álíka líklegt og að það fari að snjóa hér í dag.....
Posted at Friday, October 07, 2005 by Bryndís
Permalink
| |
Wednesday, October 05, 2005 |
Afmaeli,afmaeli,afmaeli.....
Fullt af frábaeru fólki á afmaeli í dag og fyrst verd ég ad nefna hann elsku Binna stóri bródir minn. Til hamingju med daginn elsku kallinn minn, sendi tér fullt af kossum og knúsum. Hann kenndi mér ad hjóla á BMX hjólinu hennar Hafdísar og eitt tad minnistaedasta vid hjólakennsluna var eitt skiptid tegar vid vorum ad fara upp í bílastaedid í Bár og hann var á fjórhjólinu fraega og ég á BMX og ég datt á hausinn og hann keyrdi yfir loppina á mér á fjórhjólinu, en tar sem ég er svo mikill massi tá meiddi ég mig ekki neitt.
Svo á Gummó eda Dúllarinn hvorki meira né minna en 30 ára afmaeli í dag, duglegur strákurinn og svo líka Sunna Kristín, litla prinsessan hennar Birnu en hún er 2ja ára. Vaeri alveg til í ad smella kossi a allar tessar manneskjur.
Hef engann tíma til ad srifa meira, vard bara naudsynlega ad koma tessu frá mér en skrifa vonandi eitthvad á morgun.
.....
Posted at Wednesday, October 05, 2005 by Bryndís
Permalink
Fyrir tilstilli yndislegrar tækni og nýjunga og mikillar heppni í dag þá gat ég horft á allann síðasta þátt af íslenska bachelornum. Var svo hissa þegar ég sat í stofunni með tölvuna og svo allt í einu var ég bara komin í netsamband og ákvað að láta á þetta reyna, var alveg búin að sætta mig við það að ég myndi detta út þá og þegar en sem betur fer gat ég horft á allann þáttinn og djííí hvað þetta er fyndið. Elsku Guðrún mín var ekkert smá falleg, þótt að maður hefði nú séð alltof lítið af henni, var alltaf að bíða eftir viðtali við hana eða eitthvað en því miður. En mér finnst nokkrar af þessum stelpum vera alveg frábærar, þær eru sko virkilega í þessu af fullri alvöru, þetta verður svaka spennandi að fylgjast með þessu, vona bara að ég geti horft á fleiri þætti. Mér finnst nú samt kynnirinn vera alveg hundleiðinlegur, algjör klígja eitthvað en þetta er bráðfyndið.
Annars vorum við sambýlingar nokkuð rólegar um helgina. Í dag fórum ég og Elín að skoða Olympíuþorpið og allt sem var byggt í kringum það og það er sko ekkert lítið og mjög gaman að fara þangað og ég á von á því að nokkrir sunnudagar verði nýttir í skoðunarferðir um þorpið. Skemmir nú ekki fyrir að ströndin þar er mjög flott, sólin lét nú reyndar ekkert sjá sig af viti í dag en það var samt mjög hlýtt úti. Held að það sé ekkert svo mikil sól hér í októbermánuði en það er allavega hlýtt en kannski ekki beint hægt að liggja á ströndinni oooo !!
Er enn að vinna í þessum myndavélakaupum, var búin að sjá agalega ódýrar myndavélar á netinu en svo þegar ég fer í búðirnar hérna þá eru þær bara á sama verði og heima, skil þetta ekki alveg. Er alveg viss um að þessi búð er einhversstaðar hér í Barcelona og ég ætla mér að finna hana. Á meðan er Elín að smella fullt af myndum þannig að ég er nú alveg róleg í smá tíma í viðbót. Ætlum að reyna að setja þær inn í tölvuna mína þannig að vonandi get ég farið að sýna ykkur einhverjar myndir fljótlega, svo er bara stóra spurningin hvort að ég get það.
Posted at Sunday, October 02, 2005 by Bryndís
Permalink
| |
Thursday, September 29, 2005 |
Til hamingju með daginn Stebbi !!
Stebbi "máfur" á afmæli í dag og það líka stór afmæli og ég ætla að byrja að óska honum til hamingju með það. Efast nú reyndar um að hann lesi þessa síðu en kveðjan allavega komin á netið.
Flugeldasýningin á mánudagskvöldið var eitt það magnaðasta sem ég hef séð. Hver bomban á eftir annarri í 45 mín og ég hrópaði upp yfir mig af æsingi nokkrum sinnum,alveg eins og lítill krakki. Þetta var þvílíka showið og undir var svo spiluð dramatísk tónlist og mjög hátt stillt þannig að þetta varð agalega tilfinningaþrungið á tímabili. Fullt af fólki voru með blys á lofti sem mynduðu stjörnur út um allt. Nú er bara að bíða eftir gamlárskvöldi á Djúpavogi til að upplifa annað eins.
Fengum nýjan kennara í þessarri viku því hinn kennarinn er í fríi en þessi nýji kennari ætlar sko alls ekki að leyfa okkur að vera í neinu fríi, er með endalaus heimaverkefni og er að reyna að kenna okkur milljón málfræði atriði á þessum nokkrum dögum. Með eitthvað misjöfnum árangri þó en mér finnst svo sem allt í lagi að hafa skólann svolítið krefjandi, vil læra sem allra mest í spænsku á meðan ég er hér, millivegurinn er nú samt alltaf bestur og hún er nú nokkrum kílómetrum fyrir ofan hann.
Lítið gert annars í þessarri viku nema bara rölt um borgina og skoða, endalaust að skoða og endalausar búðir að skoða í líka. Gæti sko alveg gleymt mér í nokkrar vikur bara við það að kíkja í búðir. Er að nota hverja einustu ögn af sjálfsaga sem ég hef í mér til að versla ekki eins og brjálæðingur því mar gæti svo auðveldlega gert það á no time. Visa kortið er því skilið eftir heima, allavega svona fyrstu vikurnar ;)
Lítið annað að segja í dag. Annað skiptið í ræktina á dagsplaninu, húrra fyrir því.
Posted at Thursday, September 29, 2005 by Bryndís
Permalink
|