<< November 2005 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



 
Tuesday, November 22, 2005
Coldplay....
voru frábærir og ég er enn í skýjunum. Fórum af stað og ég orðin frekar súr vegna þess að klukkan var orðin svo margt og við vorum svo lengi að finna leigubíl. Þetta er stórmerkilegt hérna, alltaf þegar mig vantar leigubíl þá er náttúrulega enginn til í allri Barcelona borg og svo þegar mig vantar ekki neinn helv.. bíl þá eru þeir út um allt en eftir mikla leit, nokkur andvörp og heilmörg blótsyrði birtist einn gulur á kantinum og við höppuðum upp í hann og hentumst í Palau Saint Jordi þar sem tónleikarnir voru haldnir. Fyrir utan var fullt af fólki að selja miða en þeir voru frekar dýrir, við ákváðum að bíða aðeins og athuga hvort að við gætum ekki fengið ódýrari miða þegar færi að líða á kvöldið og fórum og keyptum okkur bjór svona aðeins til að róa mig niður. Svo röltum við aftur upp að tónleikastaðnum og fundum mjög fljótlega mann sem var tilbúinn að selja okkur miða á 60 evrur stykkið sem er bara nokkuð vel sloppið miðað við það að allir hinir miðarnir voru á 80 evrur. Við náttúrulega gripum þetta tækifæri og ég var svo kát. Tónleikarnir voru magnaðir, Chris Martin fór á kostum og hann er núna í sérstaklega miklu uppáhaldi hjá mér. Hann er algjör töffari og talar meira að segja spænsku og þeir voru miklu rokkaðari heldur en á disknum. Þegar þeir tóku Yellow svifu gular risa blöðrur niður úr loftinu og skoppuðu á milli áhorfendanna. Sándið var frábært og áhorfendur í þvílíku lummustuði, sem sagt stórkostlega vel heppnaðir tónleikar og ég himinlifandi. Í lokin hleypur Chris upp í áhorfendastúkuna á móti okkur og þá hélt ég að þakið ætlaði að rifna af húsinu.
Ingi var hins vegar ekki í svo miklu lummustuði fyrir tónleikana og var ekkert rosalega spenntur fyrir Coldplay en kom út af tónleikunum mjög sáttur og ánægður að ég skyldi ná að hafa það með frekjunni að draga hann á tónleika.
Villtumst svo aðeins á leiðinni heim og vorum víst komin í eitthvað skuggahverfi þar sem menn eru aðallega í því að selja dóp og sjálfan sig en fundum sem betur fer leigubíl ótrúlega fljótt en hann tók okkur bara upp í af því að við litum ekki út fyrir að vera dópsalarar en vanalega tekur hann nefnilega ekki fólk upp í á þessum stað, ótrúlega miklir sauðir stundum.

Í kvöld er svo stefnan sett á leik í meistardeildinni með Barcelona - Werder Bremen og það er mjög spennandi. Ingi spenntari en ég í þetta skiptið en þetta er auðvitað eitt sem maður verður að gera hér í Barcelona, skylda að fara á Neu Camp !!  Svo er bara að krossleggja fingur og vona að ég hitti Ronaldinho og hann smelli á mig einum kossi (mjög líklegt)...

Posted at Tuesday, November 22, 2005 by Bryndís

Bryndís
November 30, 2005   12:44 PM PST
 
Snjólfur jú hann mundi nú eftir þessi og minntist einmitt á það að þetta hefði verið hin besta skemmtun :) ég hefði bara aldrei trúað hvað þeir væru frábærir live þessar elskur !!

Maggý, lending fös 16 des,ertu búin í prófum þá ??
Bryndís
November 30, 2005   12:44 PM PST
 
Snjólfur jú hann mundi nú eftir þessi og minntist einmitt á það að þetta hefði verið hin besta skemmtun :) ég hefði bara aldrei trúað hvað þeir væru frábærir live þessar elskur !!

Maggý, lending fös 16 des,ertu búin í prófum þá ??
Maggý
November 29, 2005   08:12 PM PST
 
vá ég er einum of öfundsjúk núna-Coldplay og stórleikur, ég lofaði víst að halda alltaf með Werden Bremen út í Indlandinu svo þarna hefði bara verið kjörið tækiflæri fyrir mig að kynnast team-inu. Meeeen! En að öðrum mun mikilvægari málum-hvenær kemuru heeeeeeeeeim!!!
Snjólfur Magnússon
November 23, 2005   05:12 PM PST
 
Einhverntíman hringdi Ásgrímur Ingi föðurbróðir minn í mig og vildi ólmur fá mig á tónleika, tveir fyrir einn á Coldplay í höllinni 2002. Þegar við komum á tónleikastað uppgötvaði Ingi að hann þekkti ekkert lag með hljómsveitinni. Samt skemmtum við okkur konuglega. Ég efast um að hann hafi munað að hann væri búinn að sjá þá:) Kv. snjólfur
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry