<< November 2005 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



 
Saturday, November 12, 2005
Þú skalt syngja lítið lag um lífsgleðina sjálfa í brjósti þér...
Mp3 spilarinn minn er eitt það sem ég elska mest í heiminum og ég er viss um að ég hefði aldrei lifað af hérna í Barcelona án þess að hafa þetta litla tæki. Ég get gjörsamlega gleymt mér í lestinni með einhverja tónlist í eyrunum, fæ stundum á tilfinninguna að ég sé í myndbandi og allt fólkið í kringum mig sé líka að leika í þessu myndbandi, alveg hreint ótrúlegt hvað tónlist getur gert mikið fyrir mann. Sænsku stelpurnar voru að reyna að kynna mig fyrir sænskri tónlist í gær og það var nú margt bara nokkuð skemmtilegt þarna, var minnst að fíla þær hljómsveitir sem spiluðu á sænsku en fyndið að hlusta samt.

Ég og Elin tókum verslunarleiðangursmaraþon í gær, var á tímabili farin að halda það að við hefðum þrætt hverja einustu búð á Römblunni, að minnsta kosti hverja einustu Mango búð í Barcelona.  Langar svo að sleppa mér algjörlega með visa kortið í þessum búðum en er að reyna að halda aðeins fastar um óheillagripinn svo að ég þurfi nú ekki að selja mig þegar ég komin heim ;)

Best að hætta þessu rugli og fara að pússa mig aðeins til, aðeins nokkrir klukkutímar í að Ingi komi og ég get nú ekki neitað því að spennan er algjörlega í hámarki. Eins gott að maður líti nú almennilega út svo kallinn snúi ekki við á flugvellinum og taki næsta flug heim.
Mæli sko alls ekki með því að fara til útlanda og skilja kærastann eftir heima og Brandurinn fékk svo sannarlega að kenna á því eftir að hafa sagt milljón sinnum við sjálfa mig, Inga og fullt af öðru fólki    " isss þettta verður sko ekkert mál !!!!"
Vodafone og Síminn standa örugglega í eilífri þakkarskuld við okkur fyrir að hafa bætt nokkuð mörgum þúsundkollum inn í gleðibankann þeirra og ég vænti þess að í staðinn geri þeir okkur að heiðursviðskiptavinum.

Brandurinn þotinn með Gleðibankalagið á heilanum þessa stundina.....

Posted at Saturday, November 12, 2005 by Bryndís

 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry