Netið hér heima búið að vera í stríðnisleik undanfarna viku og ég dett alltaf út eftir svona 10 mín og það er ástæðan fyrir bloggleysi undanfarna viku. Er alveg viss um að fólk er búið að bíða í ofvæni eftir nýju bloggi eða hvað....
Hvernig væri nú aðeins að kommenta og láta smá heyra í sér, er að koma heim eftir rúman mánuð og ég heimta að allir kommenti hér og nú !!
Annars er vikan búin að vera frábært, endalaust af heimsóknum í íbúðina til okkar og það er nú alveg ótrúlegt hversu mikið af fólki getur safnast saman hérna. Kannski er þetta svííunum að þakka því þetta er nú ótrúlegt en satt allt svíar. Vinir Elinar búin að vera hér síðan á fimmtudag og svo kom kærastinn hennar Sanne í gær og verður í viku þannig að það er sko búið að vera líf og fjör.
En eins og í öllum sambúðum þá koma að sjálfsögðu upp árekstrar og dönsku stelpunni og einni sænsku stelpunni lenti saman hér í síðustu viku út af KLÓSETTPAPPÍR !!! og það voru víst bara hurðaskellir og læti , sem betur fer var ég ekki heima en þegar ég kom heim var andrúmsloftið frekar súrt en það eru allir búnir að jafna sig í dag ;) Það er ekki við öðru að búast heldur en svona árekstrum þegar fimm stelpur búa saman og endalaust af gestum í heimsókn, býður nú bara upp á hryðjuverk einn daginn.
Átti þvílíka rólegheita helgi og á sunnudaginn hitti ég svo Heiðdísi Sóllilju sem var í heimsókn í Barcelona yfir helgina og hún náði meira að segja að draga mig út um hádegi á sunnudegi og við fórum á kaffihús og spjölluðum og spjölluðum og spjölluðum og spjölluð, tókum svo göngutúr um miðbæinn og spjölluðum enn meira. Fannst ofsalega gaman að hitta hana og enn betra hvað við náðum ótrúlega vel saman þrátt fyrir að hafa hitt hana alveg fáranlega lítið síðan í gamla góða ME. Takk æðislega fyrir daginn elskan !
Jæja ætla að henda mér út á götu og á næsta kaffihús og kaupa rjúkandi heitt kakó til að ylja mér, nú er nefnilega farið að verða svo miklu kaldara á kvöldin, alveg hreint ótrúlegur munur en auðvitað kvartar engin yfir kulda í Barcelona.
Over and out darling...