<< October 2005 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01
02 03 04 05 06 07 08
09 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



 
Sunday, October 30, 2005
Aftur í tímann
Í dag breyttist klukkan hérna þannig að núna munar bara einum tíma á Barcelona og Íslandi sem er aðeins betra fyrir mig þar sem ég tala svolítið mikið til Íslands ;) En Elin er búin að vera að tala um þetta alla helgina og ég hafði ekki heyrt minnst á þetta þannig að eins gott að hún sagði mér frá breytingunni því annars hefði ég mætt klukkutíma of seint í skólann í fyrramálið. Finnst mjög skrýtið að enginn af kennurunum mínum skyldi minnast á þetta við okkur og það verða eflaust margir sem að koma of seint á morgun hehe....

Annars var helgin hreint út sagt mögnuð. Gærkvöldi var mini matarboð hér en við sambýlingar ákáðum að nú væri komin tími til að borða allar saman kvöldmat og það var auðvitað endalaust stelputal og hlátur og læti eins og stelpum er einum lagið, og svo auðvitað allir út á lífið. 
Erum búnar að liggja að mestu í leti í dag en ákváðum nú að drattast út seinnipartinn og taka smá göngutúr í miðborginni og ég get svo svarið það að mér finnst ég alltaf vera að sjá nýja hluti og nýja staði, endalausa veitingastaði og kaffihús sem mig langar að fara á, byggingar, garða og svo mikið fleira. Þetta finnst mér vera lang skemmtilegast við þessa borg hversu hreint ótrúlega hún kemur manni á óvart með nýjum hlutum og stöðum á hverjum einasta degi.  En auðvitað er ekki hver dagur svona, ég get alveg viðurkennt það að ég er nokkuð föst í daglegri rútínunni á virkum dögum og hver dagur virðist líkari þeim á undan eins og hjá flestum öðrum sama hvar þeir eru í heiminum en helgarnar eru notaðar til að skoða borgina og mannlífið og það er svo endalaust skemmtilegt. Svo ég minnist nú ekki á daglegar mannlífsrannsóknir í neðanjarðarlestinni og þar er sko alltaf ný persóna til að velta fyrir sér. Vorum einmitt að tala um það áðan þegar við vorum að bíða eftir lestinni hversu mikið af fólki notar lestina og þegar maður tekur um t.d. handfangið þá er svooooo mikið af alls konar fólki búið að vera með hendurnar þar, ógeðslegt ef maður hugsar of mikið um það. Sá það í auglýsingu í gær að 800 þús manns nota lestina á hverjum einasta degi, þetta er margfaldur íbúafjöldi á litla Íslandi og svoooo ótrúlega mikið af fólki.

Jæja sennilega best að fara að læra eitthvað í spænskunni, til þess kom ég nú hingað til Barcelona :)

Posted at Sunday, October 30, 2005 by Bryndís

Birna
November 5, 2005   10:40 PM PST
 
HEHE! Ég hafði ekki hugmynd um að klukkunni var breytt og kom að læstum dyrum í skólanm hjá mér, þar sem tímanum var seinkan um klst!
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry