Komin heim til yndislega Íslands og það er frábært. Eftir tveggja tíma seinkun á fluginu komumst við loksins heim og þar sem að við vorum næstum því hungurmorða ákváðum við að skella okkur á Kentucky ummmm....
Mínar elskulegu vinkonur voru svo æðislega að skipuleggja smá hitting strax í gærkvöldi og þegar ég kom inn með Tinnu og knúsaði Röggu, Höllu,Rögnu, Krissu og Guðrúni lá við að ég fengi bara tár í augun. Anton sæti kom með kærustuna og smellti á mig einum og svo fyrir tilviljun hitti ég elskuna hann Jónas og hann var auðvitað hress eins og alltaf. Eftir heimsmet í spjalli miðað við tíma og nokkra bjóra dugði ég ekki mikið lengur og var komin frekar snemma heim, steinsofnaði á tveimur sekúnum hér í sófanum hjá Ásdísi og svo verður brunað heim í sæluna í dag.
Er geggjað spennt fyrir að koma á Djúpavog, hitta litlu ormana Kristófer og Davíð og hitta Viktor Inga sem er örugglega orðinn rosa stór síðan ég sá hann síðast. Það verður svo gott að koma heim.
Reif mig upp núna klukkan 10 til að fara í klippingu en ég hélt bara að klukkan væri svona 5 um nótt, það er svo rosalega dimmt en það er bara kósý.
Takk elskurnar mínar fyrir frábært kvöld í gærkvöldi :*