<< November 2005 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



 
Wednesday, November 30, 2005
Sæl nú !!

Fótboltaleikurinn var algjör snilld og við vorum rosalega heppin með leik og úr var algjör markaveisla. Ronaldinho fór algjörlega á kostum og það er alveg ótrúlegt að sjá hann dansa með boltann, algjör snillingur. Stemmingin var rosalega og byrjaði strax í lestinni þar sem var fullt af þýskurum, sumir drukknari en aðrir og í miklu stuði. Þar sem að við vorum nú ekki alveg viss um hvar leikvangurinn var, þótt risa risa stór sé, þá ákváðum við að fylgja þýskurunum að vellinum og okkur var hreinlega fylgt í stórum hóp og með öryggisvörðum allt í kring til að tryggja að enginn skyldi nú gera mjög mikið af sér. Mér fannst lögreglumennirnir vera frekar harðir og ég þurfti t.d. að segja þeim tvisvar að við værum ekki þjóðverjar og værum komin til að styðja Barcelona og þyrftum því sennilega að ganga inn um annað hlið en mér var bara skipað að halda hópinn og ekki vera með neitt vesen. Rétt fyrir utan völlinn tókst okkur nú samt að sleppa í burtu og vorum þvílíkt fegin því við vildum auðvitað ekki vera í hóp með þýskurunum, við styðum auðvitað Barcelona. Völlurinn er STÓR, svo miklu stærri en ég hafði ímyndað mér. Þýsku aðdáendurnir voru agalega sprækir í byrjun leiks og það heyrðist mikil stuðningshróp og köll í þeim, kom agalega flott út eins og alvöru kór. Þegar Barcelona fór svo að næstum því rústa leiknum þá sátu greyin bara þegjandi og með sorgarsvip en þá voru sko aðdáendur Barcelona komnir í partýstuðið.
Sem sagt, fótbotlaleikur á Camp Neu er algjört skilyrði þegar fólk kemur til Barcelona !!

Núna er bara rétt rúmlega vika í það að við förum til Danmerkur og ég er orðin rosalega spennt að koma heim. Er orðin alveg gífurlega spennt að fara til Köben því þar ætla mínir ástkæru foreldrar að hitta okkur og ég hlakka svo til að hitta þau þar. Ætlum svo að eyða viku í Danmörku og gera eitthvað af okkur, vonandi fara í tívolí og náttúrulega búðarráð, þótt að sé nógu sennilega nógu mikið um það hér.

Lending á klakanum er föstudaginn 16 desember, um 16:00 og svo vænti ég þess að mínir ástkæru vinir, þ.e.a.s.  þeir sem eru ekki búnir að gleyma mér, séu til í bjór og smá djammerí á föstudagskvöldinu. OK ok þeir sem eru í prófum fá undanþágu ....

Erum svo að reyna að klára að gera allt og sjá allt sem okkur langar til að sjá hér í Barcelona áður en við förum. Ég ákvað að vera bara svolítið hörð og skipuleggja hvern dag fyrir sig svo ekkert gleymist nú. Planið er því þétt og ég dreg greyið Inga með mér út um allan bæ og sérstaklega í allar búðir en hann hefur svo sem ekkert kvartað hingað til þessi elska. Tíminn bara gjörsamlega hleypur áfram.

Og auðvitað verð ég að minnast á litla frænda Þóris og Guðrúnarson sem kom í heiminn 23 nóv, hlakka til að hitta hann í eigin persónu.

Hasta luego....

Posted at Wednesday, November 30, 2005 by Bryndís

 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry